Stoðsvið

Fjármálasvið
Fjármálasvið miðlar fjármagni með arðbærum og skilvirkum hætti innan Arion banka og sér til þess að lausafjárstaða bankans sé ávallt í samræmi við kröfur stjórnar og eftirlitsaðila. Sviðið útvegar lánsfjármagn á innlendum og erlendum mörkuðum á hagstæðum kjörum sem gera bankanum enn betur kleift að þjónusta viðskiptavini.
.png)
Skrifstofa bankastjóra
Undir skrifstofu bankastjóra falla meðal annars, fyrir utan bankastjóra sjálfan, aðstoðarmenn/ritarar, sérfræðingar í viðskiptaþróun og aðalhagfræðingur bankans. Jafnframt tilheyra mannauður, lögfræðiráðgjöf, samskiptasvið og fjárfestatengsl sem og regluvarsla og persónuverndarfulltrúi skrifstofu bankastjóra.
.png)
Upplýsingatæknisvið
Arion banki hefur einsett sér að vera fremsti stafræni bankinn á Íslandi – veita þægilegustu bankaþjónustuna – með því að auka aðgengi viðskiptavina að stafrænum vörum og þjónustu bankans. Upplýsingatækni gegnir lykilhlutverki í að hrinda þessari stefnu í framkvæmd.