Innri endurskoðun
Hlutverk innri endurskoðunar er að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem ætlað er að vera virðisaukandi og bæta rekstur bankans. Yfirmaður innri endurskoðunar hefur beinar starfslegar boðleiðir til stjórnar bankans sem undirstrikar stjórnskipulagslegt óhæði hans. Sigríður Guðmundsdóttir er innri endurskoðandi Arion banka.
Erindisbréf innri endurskoðanda, leiðbeinandi tilmæli FME um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja nr. 3/2008 og alþjóðlegir staðlar um innri endurskoðun móta störf innri endurskoðunar. Skoðunum innri endurskoðunar bankans lýkur með endurskoðunarskýrslu þar sem settar eru fram áhættumiðaðar athugasemdir með tímasettum kröfum um úrbætur sem fylgt er eftir.
Endurskoðunin nær yfir bankann sjálfan, dótturfélög og hluta lífeyrissjóða í rekstri hans.