Landey
Landey ehf. er fasteignaþróunarfélag í eigu SRL slhf. sem er sjóður í rekstri Stefnis hf.
Landey hefur frá stofnun árið 2009 komið að eignarhaldi á ýmsum fasteignum og þróunarverkefnum. Núverandi eignir félagsins eru lóðir og fasteignir á Blikastaðalandi, við Þrastarhöfða í Mosfellsbæ og á Arnarneshálsi í Garðabæ.
Markmið félagsins er að auka verðmæti eigna sinna með áframhaldandi þróun og uppbyggingu þessara svæða.