Yfirstjórn
Bankastjóri
Benedikt Gíslason
Benedikt er fæddur árið 1974. Hann tók við starfi bankastjóra Arion banka 1. júlí 2019.
Benedikt hóf störf hjá FBA (síðar Íslandsbanka) árið 1998, sinnti margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Straumi-Burðarás, var framkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá FL Group og framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs MP banka. Benedikt starfaði um tíma sem ráðgjafi hjá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og var varaformaður starfshóps stjórnvalda um afnám fjármagnshafta á árunum 2013-2016. Hann sat í stjórn Kaupþings á árunum 2016-2018 og var ráðgjafi Kaupþings í málefnum Arion banka. Hann tók sæti í stjórn Arion banka í september 2018 og var í stjórn bankans þar til hann tók við starfi bankastjóra þann 1. júlí 2019.
Benedikt útskrifaðist með C.Sc. gráðu í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1998.
Skipurit 2020
Þjónustusvið
Aðstoðarbankastjóri og Framkvæmdastjóri fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs
Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason
Ásgeir H. Reykfjörð Gylfason er fæddur árið 1982. Hann tók við starfi aðstoðarbankastjóra og framkvæmdastjóra fyrirtækja- og fjárfestingarbankasviðs í september 2019.
Ásgeir Helgi hóf störf hjá Straumi fjárfestingarbanka árið 2004 og varð síðar regluvörður samstæðunnar, starfaði hjá LOGOS lögmannsþjónustu í Reykjavík og London 2009-2012 og var yfirlögfræðingur hjá MP banka á árunum 2012-2015. Hann var meðlimur í framkvæmdahópi um losun fjármagnshafta árið 2015 og starfaði sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Kviku á árunum 2015-2019. Ásgeir kenndi viðskipti með fjármálagerninga o.fl. við lagadeild Háskólans í Reykjavík 2010-2016 og hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja hérlendis og erlendis.
Ásgeir er með lögmannsréttindi og hefur lokið lagaprófi frá Háskólanum í Reykjavík.
Framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs
Iða Brá Benediktsdóttir
Iða Brá Benediktsdóttir er fædd 1976. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs í júlí 2017.
Iða Brá hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 1999. Frá þeim tíma hefur hún gegnt ýmsum störfum innan bankans, nú síðast sem framkvæmdastjóri fjárfestingarbankasviðs frá 2016 til 2017. Áður hafði Iða Brá m.a. verið forstöðumaður samskiptasviðs, einkabankaþjónustu og í fjárstýringu bankans. Iða hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja; Sparisjóðs Ólafsfjarðar, AFL – sparisjóðs, fasteignafélagsins Landfesta og HB Granda hf. Iða Brá er varaformaður stjórnar Varðar trygginga hf.
Iða Brá er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með M.Sc. í fjármálum frá Erasmus Graduate School of Business í Hollandi og með próf í verðbréfaviðskiptum.
Framkvæmdastjóri markaða
Margrét Sveinsdóttir
Margrét er fædd árið 1960. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra eignastýringarsviðs Arion banka í febrúar 2009. Í september 2019 tók hún við starfi framkvæmdastjóra markaða.
Frá 2007 til 2009 starfaði hún sem forstöðumaður samskipta við erlendar fjármálastofnanir innan fjárstýringar Glitnis hf./Nýja Glitnis. Á árunum 1990 til 2007 starfaði Margrét sem forstöðumaður Verðbréfavaktar og eignastýringar einstaklinga hjá Verðbréfamarkaði Íslandsbanka, síðar Eignastýringar Glitnis hf. Frá árinu 1985 til 1988 starfaði hún í lánadeild Iðnaðarbanka Íslands þar sem hún var um tíma forstöðumaður. Margrét hefur setið í fjölmörgum stjórnum og má þar nefna: Stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF, stjórn OKKAR líftrygginga hf. og í stjórnum nokkurra sjóðafyrirtækja í Lúxemborg.
Margrét útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1990 og cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986. Hún er einnig með próf í verðbréfaviðskiptum.
Stoðsvið
Yfirlögfræðingur
Birna Hlín Káradóttir
Birna Hlín er fædd árið 1978. Hún tók við starfi yfirlögfræðings Arion banka í september 2019 og tók sæti í framkvæmdastjórn í júní 2020.
Frá árinu 2016 var Birna meðeigandi og yfirlögfræðingur Fossa markaða. Hún var yfirlögfræðingur Straums fjárfestingarbanka á árunum 2011 til 2015. Birna Hlín starfaði hjá Straumi-Burðarás fjárfestingarbanka á árunum 2007 til 2011 og var yfirlögfræðingur félagsins frá árinu 2009. Birna hefur kennt lög um fjármálamarkaði o.fl. í Háskólanum í Reykjavík og Háskóla Íslands. Hún hefur setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja hérlendis og erlendis og er í dag stjórnarmaður í Lögmannafélagi Íslands.
Birna Hlín er með AMP-gráðu frá IESE Business School í Barcelona og lögfræðingur frá Háskóla Íslands. Hún er með málflutningsréttindi og próf í verðbréfaviðskiptum.
Framkvæmdastjóri fjármálasviðs
Stefán Pétursson
Stefán er fæddur árið 1963. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs Arion banka í ágúst 2010. Stefán var starfandi bankastjóri Arion banka frá 1. maí til 30. júní 2019.
Stefán hóf störf hjá Landsvirkjun 1991, fyrst sem yfirmaður lánamála en sem deildarstjóri fjármáladeildar frá 1995. Frá árinu 2002 var Stefán framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar auk þess sem hann sat í samninganefnd fyrirtækisins við orkufrekan iðnað. Stefán var í leyfi frá Landsvirkjun á árinu 2008 er hann stýrði fjárfestingarfélaginu Hydro-Kraft Invest hf. Á árunum 1986 til 1989 starfaði Stefán sem skrifstofustjóri hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. Stefán hefur gegnt fjölda trúnaðar- og stjórnunarstarfa á undanförnum árum. Hann situr nú í stjórn Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta fyrir hönd SFF.
Stefán útskrifaðist með MBA-gráðu frá Babson College í Massachusetts í Bandaríkjunum árið 1991 og cand. oecon.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1986.
Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs
Styrmir Sigurjónsson
Styrmir er fæddur árið 1974. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Arion banka í mars 2020.
Frá árinu 2009 starfaði Styrmir hjá Natera í Bandaríkjunum, en Natera sérhæfir sig á sviði erfðagreiningar og er skráð í Nasdaq CM kauphöllina. Styrmir gegndi frá árinu 2012 ýmsum stjórnunarstörfum hjá Natera og var framkvæmdastjóri rannsóknar og vöruþróunar frá árinu 2017. Áður en Styrmir höf störf hjá Natera starfaði hann hjá Straumi fjárfestingarbanka, FL Group og fjárfestingarbankanum Citi.
Styrmir er með doktors- og meistarapróf í rafmagnsverkfræði frá Stanford og CS-próf í rafmagns- og tölvuverkfræði frá Háskóla Íslands.
Innra eftirlit
Regluvörður
Hákon Már Pétursson
Hákon er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi regluvarðar Arion banka í apríl árið 2011.
Á árunum 2009 til 2011 starfaði Hákon hjá KVASIR lögmenn í ýmsum málum tengdum bankastarfsemi og fjárhagslegri endurskipulagningu. Á árunum 2006 til 2009 starfaði Hákon sem sérfræðingur á verðbréfasviði Fjármálaeftirlitsins (FME). Á þessum tíma var hann m.a. fulltrúi FME í hópi sérfræðinga vegna bæði MiFID og yfirtökutilskipunarinnar, hjá nefnd evrópskra verðbréfaeftirlita (CESR), auk þess að vera gestafyrirlesari hjá bæði Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík.
Hákon útskrifaðist sem lögfræðingur frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2007. Hann er auk þess með próf í verðbréfaviðskiptum og vottun í aðgerðum gegn peningaþvætti.
Innri endurskoðandi
Sigríður Guðmundsdóttir
Sigríður er fædd árið 1974. Hún var skipuð forstöðumaður innri endurskoðunar Arion banka í febrúar 2019.
Sigríður starfaði sem innri endurskoðandi Marel hf. frá árinu 2010 og þar til hún kom til starfa í bankanum. Áður starfaði hún á fjármálasviði Alcoa Fjarðaáls og í innri endurskoðun Landsbankans. Sigríður sat í endurskoðunarnefnd Stefnis, dótturfélags bankans á árunum 2014-2018 og í endurskoðunarnefnd Sparisjóðs Austurlands á árunum 2009-2019.
Sigríður útskrifaðist með M.Sc-gráðu í fjármálum og reikningshaldi frá London School of Economics and Political Science árið 2007 og með cand.oecon.-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2003. Þá lauk hún CIA-faggildingu innri endurskoðenda árið 2006. Aðrar fagvottanir frá alþjóðsamtökum innri endurskoðenda (IIA) sem Sigríður hefur lokið eru CFSA, CRMA og CCSA.
Framkvæmdastjóri áhættustýringar
Úlfar Freyr Stefánsson
Úlfar Freyr er fæddur árið 1981. Hann tók við starfi framkvæmdastjóra áhættustýringar í maí 2020.
Úlfar Freyr hóf störf í áhættustýringu Arion banka árið 2013 eftir að hafa starfað hjá Kaupþingi frá árinu 2010, m.a. sem framkvæmdastjóri áhættustýringar. Úlfar var forstöðumaður eignasafnsáhættu Arion banka á árunum 2013-2015 er hann tók við sem forstöðumaður efnahagsáhættu innan áhættustýringar.
Úlfar er með doktors- og meistarapróf í stærðfræði frá Georgia Institute of Technology og B.S. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur jafnframt lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Breytingar á árinu
Á árinu 2020 urðu þær breytingar á framkvæmdastjórn Arion banka að Styrmir Sigurjónsson tók við starfi framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs í mars, Úlfar F. Stefánsson tók við sem framkvæmdastjóri áhættustýringar í maí þegar Gísli S. Óttarsson lét af störfum og Birna Hlín Káradóttir, yfirlögfræðingur Arion banka, tók sæti í framkvæmdastjórn í júní.